Miklir menn erum við og alvitir. Þeim er ekki sjálfrátt í (Ríkistjórn Íslands) þeir læra seint.

Það eru sett lög að næturþeli sem voru ákveðin í samningum við Alþjóðagjaldarissjóðinn sem er ágætt. Þegar þetta er vitað afhvelju í ósköpunum eru ekki fengnir  trúnaðar menn frá atvinnulífinu og  verkalýðsdreifingunni og farið í gegnum áhrif svona laga, þetta er kallað samráð. Það er eins og stjórnin haldi að það viti enginn hvernig lög virka í raun nema þeir og að þeim skjátlist aldrei.

Breyta þarf lögum vegna þess að ekki var rætt við þá sem hafa mesta reynslu og þekkingu á virkni laga í raun.

Er þetta til að auka trú Þjóðarinnar á stjórnvöldum? nei það er eins og það sé skotið og spurt svo, eins og ráðamenn séu ekki með sjálfum sér. Það var nógur tími til að skoða þessa lagasetningu um gjaldelrishöft frá því samið var við sjóðinn og þar til lögin voru sett, sá tími var ekki notaður svo koma menn af fjöllum nú virkar þetta svona ég vissi það ekki. Erlendir fjárfestar gera grín að okkur og þora ekki með nokkru móti að koma með fjármuni til þessa lands sem eins og ég hef bent á áður er að verða nær og nær því að verða  Kúpa norðursins.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Og það er enn til fólk hér á landi sem vill gefa þessum vitringum svigrúm til frekari björgunaraðgerða???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 2.12.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Anna Svavarsdóttir

Ég er að heyra fólk segja alveg ótrúlegustu hluti.  Eins og það versta sem gæti gerst er að boða til kosninga.  Svo heyrir maður Það er enginn annar valkostur.  Og ég held að kommentið sem að ég heyrði í gær toppi nú allt. 

Þá sagði við mig kona það versta sem gæti gerst er að boða til kosninga.  Litlu börnin sem detta þau læra.  Þess vegna á að láta stjórnina sitja áfram.  Börnin mín þau læra alltaf þannig.  Ég þorði ekki að spyrja hvort þau hefðu einhvern tímann sett heimilið og allt sveitarfélagið á hausinn.

Anna Svavarsdóttir, 2.12.2008 kl. 19:52

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hugmyndin um að leyfa ríkisstjórninni að stunda "björgunaraðgerðir" er fáránleg einfaldlega vegna þess að þetta fólk getur ekki LÆRT. Þau fatta ekki hvað er að gerast og hvers vegna fólk er óánægt. Þau hafa engan áhuga á fólkinu heldur bara krónunni og viðhaldi ónýtra kerfa.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 2.12.2008 kl. 20:32

4 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Mér fyrnst eins og þeir haldi að þeir séu ómissandi og eingin geti neitt nema þau. Þá held ég að þjóðin upplifi þetta svona og þess vegna er reiðin og vantraustið svona mikið það getur verið að það séu aðrir ekkert betri, en þessir hafa ekki tiltrú fólksins enda hafa þeir sýnt þvílíka vanvirðu við þá sem eru að reyna að ráðleggja þeim allt frá því í febrúar á þessu ári.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 2.12.2008 kl. 20:55

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það eru margir betur til þess fallnir að stjórna landinu heldur en þeir sem nú sitja við völd. Fólk sem hefur áhuga á velferð, samfélagi og hagsmunum þjóðarinnar. Þeir sem sitja núna eiga að vera í störfum sem eru undir eftirliti vegna þess að þeim er ekki treystandi til þess að starfa sjálfstætt. Það eru þau búin að sanna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.12.2008 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband