Þingið í tveim málstofum efri og neðri deild, var það hugsunarfeill að breyta því?

Ég hef rætt það við marga hvort ekki hafi verið hugsunarfeill  að hætta að hafa tvær þingdeildir, heldur að breyta hvernig kosið var til þeirra.

Það er alltaf verið að færa meira af verkefnum til sveitarfélaganna í landinu og hugmyndir eru um enn fleiri verkefni sem rétt væri að flytja og get ég alveg tekið undir það heilshugar.

Þá er það sem svo miklu skiptir í störfum þingsins það er trúnaður og réttlæti er varðar skiptingu á þeim fjármunum sem þarf til að annast þá málaflokka sem tilheyra hvoru stjórnsýslustiginu.

Það eru deilur í dag um hvort sveitarfélögin fái réttilega  það fé sem kostar að reka þá málaflokka sem þeim er falið.

Hugsanleg lausn

Við skulum kalla það neðrideildar þar væru kosnir 20 þingmenn af sveitarstjórnarstiginu í landinu en í efrideild væru kosnir á landsvísu landið eitt kjördæmi 43 þingmenn þá væri neðrideildin með neitunarvald á frumvörp er snúa að lagasetningu er varðar sveitarfélögin í landinu.

Það væri forsetar þingsins sem væru þrír, það er byggjadeilda og forseta sameinaðs þings, að ákveða með vafa frumvörp hvort þau hefðu áhrif á tekjur og gjöld sveitarfélaganna, og skæru úr um hvort þau þyrftu að fara til umfjöllunar í  báðum deildum.

Með þessu móti ætti að vera tryggt að annað stjórnvaldið valtaði ekki yfir hitt, en með þessum hætti tæki eitthvað lengri tíma að koma málum í gegnum þingið en nú er, en vonandi yrði umfjöllunin betri og vandaðri í alla staði.

Þessi mál myndi ég vilja að stjórnlagaþing færi í gegnum og skoðað vel eins og önnur mál er varðar framkvæmdavaldið sem mjög brýnt er að lagfæra. Þá sérstaklega að ráðherrar væru ekki þingmenn þannig fengjum við miklu betra fólk til að vera ráðherra fólk sem kærir sig ekkert um að standa í prófkjörum og öllum þeim leðjuslag sem fylgir framboðum til þings Þing menn eiga fyrst og fremst að vera þverskurður þjóðarinnar heiðarlegt og gott fólk með reynslu úr atvinnulífi skólum verkalýðsfélögum sveitarstjórnum og bara nefnum það vel mentað fólk með reynslu af þessum störfum eru víðsýnustu einstaklingarnir.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Sigurðsson

Þessar vangaveltur þínar breyta engu við núverandi ástand. Og hjálpa ekki heimilum þessa lands, við þurfum ekki meira af svona uppákomum, við viljum sjá eitthvað gerast í björgunaraðgerðum til bjargar heimilum og fyrirtækjum þessa lands.

Þinn flokkur Jón er gjörsamlega búinn  að láta þessa ,,vinstri,, flokka jarðasig.

Eru þið búinn að senda Sigmund ,,Davíð,, í útilegu hann sést ekki og hans er hvergi getið við þessi nýju lagafrumvarpagerðir. Hvar er framsókn. Ég var að vona að nú væri kominn neistinn sem vantar til að láta verkin tala,????

Skúli Sigurðsson, 14.2.2009 kl. 08:21

2 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Blessaður ég nenni ekki lengur að vera í svartsýni ég vona að ég lifi samt nú er ég farinn að hugsa um framtíðina ég fjallaði um það í síðasta pistli hvað hægt er að gera fyrir heimilin í landinu.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 14.2.2009 kl. 08:34

3 Smámynd: TARA

Við viljum öll bæta framtíðina, eða flestir held ég og vonandi eru að renna upp nýjir tímar með bættum hag, vonum að minnsta kosti það besta..

TARA, 17.2.2009 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband