Fíkniefna notkun er ekki ásættanleg hjá einum eða neinum, menn lenda ekki í neyslu, það er ákvörðun.

Það er talað um að menn lendi í neyslu fíkniefna , ég seigi bara að menn kaupa eða útvega sér efni meðan þeir eru ekki í vímu alla vega í fyrsta sinn. Það er ákvörðun.

Áróður gegn fíkniefnum er stór skaðaður þegar menn koma og seigja ég var í efnum einausinni og er hættur nú eða það er ekki lengur í gangi, ekkert mál.

Áróðurinn er. Þeir sem byrja geta ekki hætt óskemmdir og án hjálpar, mér sýnist að með þessum málflutningi þá sé ægt að byrja og hætta eins og að drekka kaffi, ekkert mál.

Er áróðurinn þá svona ýktur ekki veit ég en mér finnst að þeir sem verða uppvísir að neyslu ólöglegra vímuefna verði að axla ábirgð með því að hverfa  af frontinum á fjölmiðlum í það minnsta annað er algert stílbrot.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Ég er algjörlaga sammála þér.

Guðmundur Óli Scheving, 19.2.2009 kl. 21:42

2 Smámynd: TARA

Það er hægara gert en sagt, að hætta neyslu og sammála þér að það getur varla verið eins og að hætta að drekka kaffi..

TARA, 19.2.2009 kl. 22:56

3 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Það er svo mikilvægt að þeir sem lifa opinberu lífi séu góðar fyrirmyndir því er það nánast óbætanlegt að hafa hlutina eins og ekkert hafi í skorist.

Það er kannski gott að nota regluna sem gildir í íþróttum að dæma mann í keppnisbann vegna lyfja misnotkunar. þegar þeir sem vinna fyrir sjónvarp blöð og tímarit verða uppvísir að ólöglegri lyfjanotkun verði í banni frá fronti fjölmiðla í ákveðinn tíma.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 20.2.2009 kl. 09:17

4 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Ég er að reyna að hætta að drekka kaffi, það er dj. erfitt. En ég er sammála því að fólk sem vinnur við fjölmiðlun og vill vera fyrirmyndir fyrir ungt fólk, sjái sóma sinn í því að hvíla sig á hlutverkinu í einhvern tíma.

Margrét Sigurðardóttir, 20.2.2009 kl. 20:18

5 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Það er rétt að fólk "lendir" ekki í fíkniefnaneyslu. Það er ákvörðun. Hins vegar eru til þekkt dæmi um að fíkniefnasalar setjist að í sjoppum nálægt grunnskólum til að finna sér viðskitavini á aldrinum 13-16 ára.  Þau eru mjög auðveld bráð og þó þau taki ákvörðun um að kaupa fíkniefni og neyta þeirra er varla hægt að tala um meðvitaða ákvörðun. Ég vil því gera smá greinarmun annars vegar á unglingum sem fara á fíkniefnabrautina og svo þeim sem eru orðnir eldri.

Hins vegar það að vera opinber eða þekkt persóna og verða uppvís af fíkniefnamisferli (notkun, sölu eða annað) á náttúrulega alls ekki að líðast. Þetta er í allra besta falli ólöglegt..

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 21.2.2009 kl. 13:03

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Alveg sammála þeim sem hafa tjáð sig hér. Börn og unglingar "lenda" eða " leiðast" út í eiturlyfjaneyslu, oft fyrir þrýsting eða forvitni, ekki fullorðnir menn. Stöð tvö tekur þessi mál ekki föstum tökum. Það er greinilega ekki sama Jón og séra Jón þar. Þeir tíma ekki að láta Björn Jörund fara en voru ekki í vandræðum meðan Kompás var og hét að dæma mann og annan. Mér finnst það veikleikamerki að vera með undanslátt í þessu og verð að segja að þetta bendir til þess að þeim finnst þetta smámál. Ég mun íhuga það að segja upp áskrift minni hjá þeim út af þessu. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 21.2.2009 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband