Færsluflokkur: Bloggar
Það er einmitt með svona framkvæmdum sem vinna gull fyrir okkur og framtíðina .
það komnar margar virkjanir á þann aldur að vera að fullu afskrifaðar og framleiða rafmagn sem spara þjóðarbúinu olíu og aðra aðkeypta orku.
En hvað er meiri sjálfbærni en vélar sem ganga í tvöfalt lengri tíma en þeim er ætlað þegar þær eru fjármagnaðar.
Það er nefnilega ekki fyrr en eftir 25 til 30 ár sem þær eru orðnar verulega arðbærar og þá er nú farið að nálgast að næsta kinnslóð taki við og sú kinnslóð fær þá virkjunina skuldlausa framleiðandi gjaldeyri með eðlilegu viðhaldi.
Þess vegna eigum við að virkja þar sem hagkvæmt er ég er ekki að mæla með að allt virkjanlegt vatnsafl verði virkjað á auga bragði heldur að við virkjun þannig að það verði ákveðinn hópur sem starfi við virkjanir að staðaldri ekki í of stórum virkjunum nema að markaðurinn verði með þeim hætti að svo verði að vera.
Það má allavega hugsa um að hafa ekki mörg verkefni í einu í gangi.
Það er þjóðhagslega hagkvæmt að hafa þjálfað lið til staðar svo ekki þurfi að flytja inn vinnuafl til þess að byggja og smíða það sem þarf.
![]() |
Fossavélin hefur gengið í 73 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.2.2010 | 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
![]() |
Dýrt að hafna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.2.2010 | 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Já atvinnuleysið má vara lengi en, það er ljóst að það verður ekki um virkjanir að ræða á meðan VG fer með stjórn í landinu.
Þessar virkjanir í Þjósá eru rennslisvirkjanir sem eru þær umhverfisvænstu í heimi eingin lón þau eru fyrir.
Bara pollar til að ís komist ekki að vélunum líkt og við Sogið.
Það má kinda kolaver allt um kring það veldur ekki hlýnun jarðar við erum einstök og hljótum að hafa sér himinhvolf yfir okkur.
Hvar er heilbrigð skinsemi?
![]() |
Synjar skipulagi við Þjórsá staðfestingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.2.2010 | 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef það er rétt að hér hafi allir keppst við að seigja ósatt um stöðu bankanna þá eru það nánast landráð.
það hefur komið fram að það var vitað í febrúar mars að bankarnir væru að fara og gætu ekki fjármagnað sig.
þá var fundin upp þessi snilldar lausn að fá Hollendinga til að leggja inn á reikninga og fjármagna bankann þannig það hefði hugsanlega verið í lagi ef allar undirstöður bankans hefðu verið í lagi en það var ekki og það var einnig vitað.
Það var búið að upplýsa ríkistjórnina um að veruleg hætta væri á ferðum.
Hvaða flokkar stjórnuðu þessu jú þeir sem virðast hafa mesta fylgið í skoðanakönnum það er hlálegt við lærum ekkert því miður.
![]() |
Talaði ekki um Seðlabankann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.2.2010 | 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nú er upplýst að það verður sáttasemjari frá Kanada sem mun hjálpa til við samningagerð um þessa að blessuðu innistæður.
Ef ESB hefur vilja til að semja þá gæti Þýskaland og eða Frakkar lánað Íslandi fyrir þessu á vöxtum sem væru 1% eða þar um bil og Ísland greitt þetta á einu bretti til Hollands og Breta og lánveitandinn tekið yfir eignir Landsbankann og svo greiðir Ísland það sem uppá vantar þegar þar að kemur.
Þetta er hægt ef vilji er fyrir hendi hjá þessum þjóðum upphæðin er ekki stærri en það, það er bara prinsippið að við greiðum svo almenningur treysti bönkum og geri ekki áhlaup á þá
Ég hef það á tilfinningunni að þetta snúist um prinsipp en ekki peninga nema að litlu leiti.
Bloggar | 31.1.2010 | 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er nefnilega þannig lesendur góðir ef það hefði verið slegið skjaldborg um heimilin þá hefði reikningurinn verið um 100 miljörðum hærri, var það ekki í lagi að dreifa birgðunum á alla?
Hvers vegna því þá hefðu höfuðstólar lána til allra verið færð niður um 15 til 20 % .
Í staðinn eru það þeir sem skulda sem eru látnir greiða þessa umfram 100 miljarða en þeir sem voru áhættumestu lántakendurnir fá jafnvel allt að 30 % niðurfellingu lána vegna þess að húsnæðið er yfirveðsett.
Er þetta sanngjörn úrlausn fyrir alþýðu manna? ég segi nei þetta er eins og annað þeir sem haga sér á óábyrgan hátt fá meira til sín á meðan þeir sem gera hlutina að skinsemi sitja eftir með sárt ennið, réttlætið er ekkert og óréttlætið er það sem öllu stjórnar þetta er viðbjóðslegt verð ég að segja.
Þeir sem áttu peninga í peningamarkaðssjóðum fengu nánast allt sitt það eru þeir sem eru væntanlega skuldlausir og hinir yfirveðsettu þessir fá drjúgan hlut til sín en hinir hófsömu sem er mikill þorri fólks er á besta aldri sem á að greiða skattana af öllu sukkinu fær ekkert af því sem fer í leiðréttingu á þeim stökkbreyttu lánum sem það átti ekki von á.
Ég hef skömm á vinstristjórn sem hagar sér svona, því hún beitir í flestu vinnubrögðum stjórnmálaflokka sem lengst eru til hægri í stjórnmálum, og ætti því með réttu að kallast hægristjórn.
![]() |
Flokksráð VG styður stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.1.2010 | 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það má seigja að Steingrímur er kjarkmaður að drekka ólyfjan og kveljast þannig lengi en að neita og þrauka og láta reyna á hvort maður nær ekki til vatnslindar þó illa haldinn væri.
Það mætti fara með kvæðið um 10 litla negrastráka en einn þeirra drakk ólyfjan og eftir það fækkaði um einn.
Þannig er þetta að verða hjá ríkistjórninni nema hvað Ögmundur neitaði að drekka og þá fækkaði um einn samt en aðrir eru að drekka ólyfjan og ég spái því að þeim fækki óðum þeim sem þann drykk drekka.
Gæti svo farið að ríkistjórnin færist öll af þeim ólyfjan.
![]() |
Betra en að deyja úr þorsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.1.2010 | 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hræðsla og meiri hræðsla áróður fyrir að lögin standi verður sá að ef lögin verða feld úr gildi þá fer ríkistjórnin en ef lögin halda þá verður hún áfram , að mínu áliti ekki gáfulegt útspil.
Það er enginn að krefjast þess nema stjórnin sjálf, það er krafan ef þau verða feld að önnur vinnubrögð verði við höfð og að Alþingi kjósi nefnd þverpólitíska til að semja á þeim nótum sem regluverkið býður, og án þess að einhver tapi málinu, allir verða að vinna. Ingibjörg Sólrún hefur séð þetta og það er eina leiðin til að sameina þjóðina.
Það á að gera ráð fyrir því að lögin verði feld og miða allar gjörðir við það þar með að skipa nýja nefnd með erlendum sérfræðingi helst frá Ameríku og hafa einhvern sátta mann frá Evrópusambandinu þannig komi fram sjónarmið EES og alþjóðaréttar síðan fara menn bil beggja þannig eru samningar gerðir ef annar fær allt en hinn ekkert þá er ekki um samning að ræða og þannig er það núna, nokkrir erlendir aðilar eru okkur sama sinnis í þessum efnum.
Við verðum að skilja að við eigum í samningum við rótgrónar nýlenduþjóðir sem hafa kúgað sínar nýlendur út í eitt, og þannig líta þær á smáþjóðir eins og okkur.
Þeir seigja þetta eru peningar sem þið fenguð að láni og eigið að skila en þeir áttu að hafa eftirlit með þessum bönkum eins og við.
Hverjir eru þeirra helstu bandamenn Danir hvers vegna? er það tilviljun að þeir voru og nýlenduveldi, eins og Bretar og Hollendingar, og ekki má gleyma að þeir hafa mjög mikil viðskipti við Breta.
Bloggar | 8.1.2010 | 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | 5.1.2010 | 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Undarskriftirnar vekja athygli erlendis.
Steingrímur seigir að það sé best að forsetinn kvitti undir lögin til að þessi hluti hrunsins sé frá og það sé öllum fyrir bestu.
Steingrímur þarna skaustu yfir markið fólk er ekki fífl það liggur í orðum þínum að þú treystir ekki þjóðinni til að velja rétt í þjóðaratkvæði ,ef forsetinn skrifar ekki undir þá ert þú búinn að seigja of mikið til að halda áfram í embætti en það er ekki þar með sagt að ríkistjórnin þurfi að fara það ert þú sem ert holdgerfingur þessa samnings.
Ef þjóðin fer sameinuð til samninga þá vinnst eitthvað en eins og þú hefur unnið málið er það tapað það á að kjósa á Alþingi þverpólitískt í samninganefndina og hún kemur til viðræðna sem einn maður ekki sem hani á hól, eins og þið hafið hreykt ykkur í þessu máli.
Hvernig halið þið að samningar um ESB verði ef staðið verður eins og í þessum samningum ég seigi bara Guð almátugur, og Guð blessi Ísland.
Bloggar | 3.1.2010 | 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
(netauga)
-
Anna Einarsdóttir
-
Anna Karlsdóttir
-
Arnþór Helgason
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarni G. P. Hjarðar
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björg Reehaug Jensdóttir
-
Brynjar Örvarsson
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Diesel
-
Dunni
-
Ebba Lóa Ásgeirsdóttir
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Sigurbergur Arason
-
Eiríkur Harðarson
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Gestur Guðjónsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Gísli Tryggvason
-
Haraldur Haraldsson
-
Haukur Gunnarsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiðar Lind Hansson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Hermann Einarsson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Ingibjörg Daníelsdóttir
-
Ingimundur Bergmann
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Jón Finnbogason
-
Jón Pétur Líndal
-
Jóna Guðmundsdóttir
-
Júlíus Björnsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kolbrún Hilmars
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Kári Harðarson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Pálsson
-
Magnús Guðjónsson
-
Magnús Vignir Árnason
-
Marinó G. Njálsson
-
Marta B Helgadóttir
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Reynir Jóhannesson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök Fullveldissinna
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Fannar Guðmundsson
-
Sigurður Ingi Jóhannsson
-
Sigurður Árnason
-
Sigurður Þórðarson
-
Skúli Sigurðsson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinbjörn Eyjólfsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Helgason
-
TARA
-
Torfi Geirmundsson
-
Tómas Ellert Tómasson
-
maddaman
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Ólafur Ragnarsson
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þór Saari
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar