Færsluflokkur: Bloggar

Hver lygur og þorir ekki að kannast við að hafa samið við Má Seðlabankastjóra?

 

Tvær ljóshærðar konur í fáti og einn seðlabankastjóri.

Lygi er tilraun til að halda sannleikanum frá þeim sem eiga rétt á að þekkja hann. Einhvern vegin svona mætti kannski lýsa því sem er að gerast í málefnum seðlabankastjóra. Fullyrt er í Fréttablaðinu 7. maí að gert hafi verið samkomulag við Má um ákveðin laun. Láru V. Júlíusdóttur, formanni bankaráðs seðlabankans, var falið að efna þetta samkomulag. Samkomulag sem engin kannast við að hafa gert. Því verður að spyrja; var gert samkomulag eða ekki? Augljóst verður að telja að einhverskonar samkomulag hafi verið gert. Ef ekkert slíkt samkomulag væri til, hefði formaður bankaráðs Seðlabankans naumast farið að ræða launahækkun upp á 400 þúsund krónur til handa Má Guðmundssyni. Lára V. Júlíusdóttir er að vinna í umboði einhvers, en hvers? Hverjir eru til þess bærir að gefa Má Guðmundssyni loforð um ákveðin laun? Öll bönd berast að forsætisráðuneytinu og þeim sem þar ráða fyrir búi. En aðspurð segir Jóhanna Sigurðardóttir að hvorki hún, né Steingrímur J. Sigfússon hafi vitað af fyrirheiti um laun seðlabankastjóra.

Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra, hún réð seðlabankastjóra. En undarlegt má það teljast að einhver annar en sá sem réð, ákvað hver launin ættu að verða. Lára er spurð í viðtalinu, hvers vegna hún vilji ekki greina frá því, hver hafi gefið Má fyrirheit um að laun hans yrðu þau sömu og fyrirvera hans [Svein Harald Øygard]. Lára svarar: Ég kýs að tjá mig ekki um ástæður þess. Þetta virðist mér óboðlegt svar, frá manneskju sem valin er til þjónustu fyrir almenning og þiggur fyrir almannafé. Hvar liggur hollusta Láru?

Allt er þetta mál sveipað einhverjum lygavef, því miður. Engin kannast við að hafa gefið neitt loforð eða fyrirheit, sem formaður bankaráðs byggir málflutning sinn á. Samt var það gefið. Almenningur á heimtingu á því að vita hvernig í pottinn er búið. Svarið liggur meðal annars í forsætisráðuneytinu og hjá formanni bankaráðs Seðlabankans. Hjá tveimur ljóshærðum samfylkingakonum. Svo ekki sé nú talað um seðlabankastjóra sjálfan.

 


Ráðherrar sem eru sakaðir um vítavert aðgerðarleysi það er vanrækslu í starfi í skýrslunni verða trúlega dregnir fyrir landsdóm , en hvað með þingmenn sem hafa hlotið háa styrki er þeim sjálfrátt? Er þerra vinna án kvaða?

Það er nú auðvelt að sjá að ekki átti að hleypa innlánsreikningunum af stað í Hollandi vorið 2008 það er augljóst þá var vita að bankarnir væru ónýtir.

Þá hefði verið hægt að flagga K.B Bankanum út úr landinu þeir flyttu lögheimili sitt til Bretlands þannig hefði skaði íslands orðið minni.

Í staðin fara Geir og Ingibjörg í úrás og seigja stöðu bankana mjög sterka, stað þess að þegja og sauma að þeim.

Hvers vegna gera þau það er það vegna þess að bankarnir eru búnir að styðja þau og flokkanna þeirra svo mikið?.

Manni grunar að þeim hafi ekki verið sjálfrátt eftir að þau vissu að bankarnir væru ónýtir.

Það þíðir ekki  hjá þeim sem á þingi sitja og eru með samviskuna í molum vegna þess að þeir brugðust sér og þjóðinni að þumbast við að standa upp úr stól þingmanns, þau vissu hlutina áður en síðast var kosið og áttu ekki að gefa kost á sér aftur það er mergurinn máls ef það er  einhver samviska þá hefði hún komið fram þá.

 Nú er þetta sýndarmennska hjá þeim þingmönnum sem nú hrekjast af þingi og þeir eiga eftir að vera miklu fleiri áður en langur tími  er liðinn, ég ráðlegg þeim að fara strax láta ekki hrekja sig burt með skömm heldur að standa upp með virðingu en hún er ekki til ef til þess kemur að þau verði hrakin burt með skömm.

Virðing þingsins má ekki við meir niðurlægingu en orðin er sýnið mandóm og standið upp strax.

 


Hvar er spillingin í stjórnmálaflokkunum mest hverjir voru á styrkjum frá bönkunum? Hvað er til ráða svona má ekki gerast aftur.

Samfylkingin hefur hrópað að Framsóknarmönnum um að þar væri spilling og hann á samt Sjálfstæðismönnum væru hrunflokkarnir, en hvað seigir skýrslan góða.?Það voru Samfylkingar frambjóðendur og flokkurinn í öðru sæti en Sjálfstæðismenn og hans frambjóðendur í því fyrsta.

Það seigir mér enginn að það hafi ekki áhrif að fá styrki frá bönkum og fjármálastofnunum í prófkjörsbaráttu á það sem fólk þarf að takast á við í starfi sínu á þingi.

Þessir tveir flokkar hafa verið á spena hjá fjármálastofnunum og Baugi sem ryksugaði allt fé sem laust var til sín.

Ég seigi burtu með prófkjörin það eru þau sem eru undirrót vanda íslands hvaða heiðarlegur og virtur fræðimaður fer í betlileiðangur til að ná í fjármuni til að koma sér á framfæri í pólitík enginn.

Framsóknar menn hafa haldið prófkjör  svo sem í Reykjavík fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar og við sáum hvert það leiddi.

við eigum aldrei að hafa opin prófkjör aðferðin sem Framsóknarmenn í Reykjavík notaði síðast er sennilega besta aðferðin og ætti ekki að leiða til fjárhagslegra spillingar en hvort sú aðferð leiði til þess að besta og hæfasta fólkið gefi kost á sér skal ósagt látið.  

Hér áður fyrr þurftu flokkarnir að sækja hæfasta fólkið inn í atvinnulífið og háskólana til að taka þátt í pólitík þannig fengum við hæfasta fólkið til starfa á þingi.

Í dag eru það fjölmiðlamenn og þeir sem eru hvað harðastir í að ( að selja sig þeim sem vilja greiða fyrir að koma þeim á þing) sem þangað ná í gegnum prófkjör.

Við verðum að fá Stjórnlagaga þing strax og um leið og við erum búin að greina okkar vanda og breyta stjórnarskránni þannig að við fáum okkar besta fólk í að gæta hagsmuna þjóðarinnar á hverjum tíma og að gera þeim kleift að vinna að því undir vökru eftirliti þingsins.

Framkvæmdavaldinu verður að koma af þingi og hugsanlega að kjósa það beint.  


Hvað meinar skattrannsóknastjóri með að auglýsa að hann ætli að kyrrsetja eignir?

 

Nú er maður  að verða meira undrandi á stjórnvöldu þegar þau auglýsa sérstaklega að þau ætli að kyrrsetja eignir úrásavíkinga og annarra sem skulda skatta.

Hver er tilgangurinn? er það til þess að þeir geti tekið út peninga og sett þá í felur svo þeir finnist ekki. Ég myndi gera þetta með áhlaupi en ekki að seigja frá því fyrst frekar en þegar húsleitir eru framkvæmdar.

Nema tilgangurinn sé að hjálpa þeim að fela peninga.

Það er sennilega best  að skipta um minnt til að þessir peningar komist  ekki í umferð á meðan gjaldeyrishöftin gera þetta mögulegt þannig komast peningarnir sem eru hér á landi ekki í umferð. 


Ólíkinda stjórn gerir allt annað en allir vinstrimenn töldu að vinstristjórn geri. þetta gæti með góðu heitið stjórn Ragnars Reykás. Ég legg til nýtt nafn á stjórnina Reykásstjórnin

Maður er svo gáttaður á þessari stjórn að maður kemur valla upp orði lengur.

Maður hlær og hlær

Lagfæring bílalána er eins og menn viti ekki hvað bíll er og hvað þá bílalán.

Að miða lán við 100 til 110% að verði bílsins er eins og að skjóta fugl með lokuð augun,

Bíll fellur í verði við hver mánaðarmót og við hvern ekinn kílómeter hvar er upphaf og hvar er endir:

Fasteignir að miða þar við 100 til 110% er þó eign sem hækkar í framtíðinni enda lán þar til 40 ára en hvernig er hægt að miða bílalán við fasteign er bara rugl og vitleysa, það er miklu hreinlegra að taka bílana og fólk kaup aftur bíl á nýju láni þá á markaðsverði sem þá er í gild, það mætti vel hugsa sér að þar ætti við reglan að skila lyklunum og málið dautt.

Svo er það Herþoturnar það er hreint afrek hjá fyrstu vinstristjórninni að fara að gera út herskóla fyrir Nató maður grætur úr hlátri af þessu ef þetta hefði verið Sjálfstæðiflokkurinn þá skyldi ég málið, nei fyrsta vinstristjórnin ahh! ahh! ahh!.

Það þykist engin vita neitt en það er þó búið að greiða inná samninginn, hver tekur við greiðslum er það ekki fjármálaráðaneytið ég hélt það.

Ef þetta er gjörningur stjórnsýslunnar á vitundar ráðherra myndi ég reka þann mann út úr því þó ég þyrfti að greiða honum laun til æviloka  þetta er að mínu mati prinsipp mál hjá Vinstristjórn.

Þá er það leiðréttingin fyrir blessað fólkið sem er að missa allt já það má búa áfram í eigninni eftir að hafa misst hana og svo er það samvinnufélagsformið það er að vísu gott form fyrir þá sem það vilja það hefur kost þá er íbúinn frjáls af því að flytja sig á milli staða engum háður engir átthagafjötrar sem oft fylgja egnum sem falla í verði.

Fagmálakerfið sem var að sliga sveitarfélögin er fólið flutt burt vegna minnkandi vinnu það gerist aftur vinnan er ekki alltaf sú sama í hverjum landsfjórðungi fyrir sig.

Bjarni Ben  hrópar burt með stjórnina hún er ekkert að gera.

Ég vil hafa þessa stjórn vegna þess að hún léttir manni lund þar sem maður getur ekki annað en skellt uppúr og hlegið að þessum misheppnuðu bröndurum þerra, það er nauðsynlegt að geta hlegið að einhverju.


Er þetta stjórn hinna vinnandi stétta? Þetta er vinstristjórn sérhagsmunna

Það ætlar engan enda að taka þessi dýrkun ríkistjórnarinnar á þeim sem skuldsettu sig upp í rjáfur voru á neyslufylliríi 2007

Þeir eiga að fá mest afskrifað af húsnæðinu og bílunum þeir sem fjárfestu af skinsemi fá ekkert.

Það eru þeir sem tóku 100% lán í húsnæðinu þeir fá niðurfellt í 110% nú þegar allt hefur hækkað um 30% og verðið lækkað þannig fá þeir alla vísitöluna til baka.

Þeir sem keyptu Renc/rover og dýrari jeppa  fá miljónir til baka enda hefur verðið þeirra bíla lækkað mest.

Árni Páll sagði um leið framsóknarmanna að hún væri ófær því þeir fengju mest sem skulduðu mest það getur verið rétt en þá fengu allir hlutfallslega eitthvað en í leið ríkistjórnarinnar þá fá þeir einir eitthvað sem lifðu langt um efni fram og óábyrgu lífi,ef þetta á að verða þannig þá held ég að stjórnin sé komin svo langt til vinstri að hún sé orðin hægri fasistastjórn.

Réttlætið hjá henni er ekki til.

Nú þarf nýja byltingu því ríkistjórnin er ekki stjórn fyrir almenning í landinu heldur stjórn sérhagsmuna og sértækra aðgerða sem oftast er aðferð hægrimanna og fasista, og  komanista.


Hvað veldur því að ráðamenn og blaðamenn eru að fara með ósannindi um menn og málefni er tengjast Iec save.

Ráðherrar telja að samningar séu í höfn og allt sé að verða klárt rétt fyrir kosningar.

þá seigir Steingrímur J að eitthverir í samninganefndinni vilji ekki semja.

Hver et tilgangur með þessum málflutningi?

Hvað halda viðsemjendur okkar um þessa ráðamenn sem eru með yfirlýsingar um að samningar séu að takast og þeir eru ekki með þær upplýsingar þó í nefndinni séu.

Hvernig halda þeir að einhverjir vilji semja við þá þegar þeir ganga um með ósannindi aftur og aftur þannig að þeir upplifa íslenska ráðherrar sem svikari bæði við sig og þjóð sýna við erum ekki að semja við fífl.

Ráðherra sem skrifar undir samning með vissu fyrir að það er ekki meirihluti á Alþingi fyrir þegar hann gerir það ,á að fara frá nú þegar.

Trúverðugleiki Íslands er enginn með svona framkomu óvirðingin er alger þegar ráðherra sýnir viðsemjendum og Alþingi sinnar enginn þjóðar fingurinn!

Það eina sem hann getur gert til að bæta fyrir framkomu sýna er að biðja viðsemjendur afsökunar á að hafa gert þetta og segja síðan af sér.


Ríkistjórnin verður að skilja að hún hefur ekki trúnað frá Bretum og Hollendingum og þeir munu ekki semja án aðkomu stjórnarandstöðunnar.

Mér þykir Jóhann og Steingrímur vera full hroka þegar þetta er ljóst þau verða að sýna stjórnarandstöðunni fulla auðmýkt og setja hana í lykilhlutverk í mörgum málum ef þau ætla að ná árangri þannig getur þessi stjórn lifað af.

Að böðlast áfram með engan trúnað verður hennar engin gröf bara dýpri og dýpri.

Það verða allir að setjast niður og segja þetta er búið nú tökum við upp önnur vinnubrögð þar sem flokkarnir vinna saman að lausn á þeim málum sem hvíla á þjóðinni. Það verður sennilega ekki hægt nema að Jóhanna og Steingrímur seigi af sé og Ögmundur og Össur taki við tímabundið.

Ef ríkistjórnin breytir ekki um taktík þá er hún búin og málin í mikið meiri hnút, en að viðurkenna stöðuna strax .

 


Samningarnir við Breta eru í hefðbundnum kjarasamnings ferli.

Nú eru Bretar búnir að átta sig á því að þeir eru búnir að tapa samningsstöðunni og eru í því að finna hvernig þeir geta komið standandi  út úr þeim það verður að leika leikritið til enda þannig að allir séu sigurvegara þannig er þetta í kjarasamningum.

Staða er eins og þegar stéttafélag hefur farið í verkfall og hvikar ekki frá kröfum sýnum sem eru réttmætar en vinnuveitendur vilja ekki gefa eftir svo allir aðrir komi ekki á eftir með sömu kröfur.

Hvað er þá gert það er búinn til pakki sem ekki er eins og menn kröfðust heldur gefur það sama og þó menn segist ekki vera að tala saman þá er það taktík sem virkar vel svo kemur útspil rétt fyrir atkvæðagreiðsluna og málið er dautt.

Þegar allir standa saman þá er frekar auðvelt að ná settu marki en þegar hvíslingar eru í liðinu þá er voðinn vís um árangur.


Bónusfeðgar ættu að sýna í verki hversu miklir alþýðumenn þeir væru og laga ímynd sína í leiðinni þar sem þeir eru búnir að leika eitt stæðasta hlutverk í útrásinni.

Nú er lag hjá Jóhannesi Jónssyni að sína að það er ekki græðgi sem rekur hann áfram í viðskiptum heldur manngæska og hvati til að útvega þjóðinni vörur á sem hagstæðasta verði.

Á kreppuárunum var Kaupfélag Árnesinga stofnað af kaupmanni sem breytti sínum rekstri og gerði að samvinnufélagi með fólkið í héraðinu með sér þar fór hugsjónamaður sem hafði sitt leiðarljós að þegnarnir og félagsfólkið fengi vörur og þjónustu á sem allra besta verði hvort sem það voru framleiðendur og eða neytendur.

Nú er lag að gera Haga að Samvinnufélagi  fá fólkið með sér í að leggja fram stofnfé þá geta lífeiryssjóðir landsmanna komið til og lánað rekstrafé á viðráðanlegum vöxtum, það má sjá fyrir sér deildir í þeim héruðum sem verslanir eru í nú þegar sem eru flestir landsfjórðungar.

Þetta væri hið nýja Ísland með jöfnuð og félagshyggju í fyrirrúmi.

Í Danmörku er mjög öflug samvinnuverslun sem rekinn hefur verið mjög lengi.

Við Íslendingar eigum að stuðla að því að þannig verslanir og fyrirtæki séu starfandi hér, samvinnufélög eru sem betur fer enn hér öflug svo sem MS og SS í afurðarsölu og það hefur tekist að verja þau á þessum útrásartímum og tímum græðisvæðingar, sem hér ætlaði allt að drepa.

Þá eru Kaupfélög  hér svo sem Kaupfélag Skagfirðinga mjög öflugt og vel rekið þá er Kaupfélag Suðurnesja með margar verslanir Samkaupa, KEA er  fjárfestingafélag í dag það var mjög öflugt viðskipta blokk en en einkavæðingin kom þeim út af markaðnum með látum.

Hversvegna urðu Kaupfélögin svo máttlaus sem raun ber er það vegna þess að þau voru rekin á svo lágri framlegð að þau þoldu ekki að Hagar með sitt veldi og einokun krafðist afslátta frá birgjum þannig að birgjar urðu að lát minni verslanir greiða afsláttinn til Haga þannig varð vöruverðið sjálfkrafa hærra í þeim verslunum.

Það er einkennilegt þegar smærri viðskiptavinir fá hagstæðara verð í Bónus en hjá birgjunum þó staðgreiðsla sé í boði. 

Arion Banki ætti að gera það að skilyrði að Hagar rynnu til þjóðarinnar í formi samvinnurekstrar þar sem þjóðin hefur þurft að greiða fyrir brölt þeirra um heiminn með því að þeir ryksuguðu allt fé úr t.d sparisjóðum landsmanna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband