Hvaða rugl er þetta með gengistryggðu lánin það á að stoppa þessa banka og kæra þá fyrir okurlán

Hvar er fjármálaeftirlitið? því stoppar það ekki fjárkröfur bankana á hendur þeim sem fengu gengistryggð lán?

Það á að kæra þá strax fyrir okur ef þeir hætta ekki að innheimta gengistryggð fasteignalán.

Þeir sem brjóta lög eiga að sæta refsingum er ekki svo? en það er greinilega ekki sama hver maðurinn er það eru greinilega nokkrar stéttir í þessu þjóðfélagi sem ekki hafa sömu skyldur og þar af leiðandi ekki sömu lög.

Íslendingar háðu sjálfstæðisbaráttu til að losna undan Dönum sem hér kúguðu Íslendinga um aldir.

Þarf nýja sjálfstæðisbaraáttu til að losna undan nýju auðvaldi sem ríkir hér í skjóli ( vinstrimanna allavega um stund )?

 Hvar er réttlætið?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband