Fór tími Jóhönnu framhjá? hennar tími er liðin verkalýðshreyfingin sér ekki glætu hjá stjórnarflokkunum.

Það er að verða ljóst að stjórnin er fallin á tíma og ASÍ sér ekki að hún sé með neitt til að bjarga heimilum og fyrirtækju.

Það þýðir eitt hún fær aldrei trú og traust og þar með ekki vinnufrið.

Stjórnin verður samtímastjórn sem ræður ekki við vandamálið er eins og ég hef áður haldið fram í pistlum mínum haldinn verkkvíða og framtaksleysi forustufólkið er orðið of gamalt til að taka á erfiðum málum.

Allur tíminn fer í vafstur og vesen og ekkert gerist.

Sorglegar staðreyndir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA

Vonum að bráðum komi betri tíð með blóm í haga og angan i lofti...góða helgi.

TARA, 8.5.2009 kl. 13:29

2 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Sæll Jón.

Hvaða óþolinmæði er þetta, tekur meira en nokkra daga að hreinsa til eftir Framsóknar og sjálfstæðissukkið.

Ingimundur Bergmann, 9.5.2009 kl. 21:45

3 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Ingimar þau voru nú ekki lengi að því á Þingvöllum Ingibjörg og Geir það er eitthvað annað sem tefur.

Ég hef nóg þol en mér sýnist að það séu þeir sem skulda sem hafa minna þol og nánast ekki neitt.

Það er ekki gott að byrja með alla á móti sér það gerir hlutina ekki auðveldari.

Þá er það ljóst að búsáhaldamenn V.G verða ekki tryggir stuðningsmenn þessarar stjórnar ef ekki verður farið í að leiðrétta lánin til lækkunar. V.G verður í þessari stjórn í sama hlutverki og Samfylkingin í stjórn með Sjálfstæðismönnum í eilífri vörn og síðan brotna þeir innanfrá  eins og Samfylkingin gerði það þarf sterk bein til að vera í stjórn og að þurfa að taka óvinsælar ákvarðanir

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 10.5.2009 kl. 14:52

4 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Jón.

Þú hefur engar stareyndir ennþá.

Það eru nokkrir klukkutímar frá stjórnarmyndun.

Þetta er bara upphrópun og hræðsluáróður vegna þess að þú sem greindur maður sér að nú verða fyrst breytingar til batnaðr.

Verkalýðshreyfingin er steindauð með þessa forustu ASÍ en það breytir engu það verða gerða lagabreytingar og ég hef trú á að þessi ríkistjórn leysi málin.

Þú ættir að lesa samstarfssáttmálan og bera hann kannski saman við sáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, sem mér heyrist að þér finnist hafa staðið sig svo vel.

Kveðja.

Guðmundur  Óli

Guðmundur Óli Scheving, 10.5.2009 kl. 21:21

5 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Sæll Guðmundur ég vona að stjórninni farnist vel og taki til í ýmsum málum en ég er hræddur um heimilin að þar verði ekki nóg að gert og þau brotni og ef það gerist að fólk fari í greiðsluverkfall sem ég mæli ekki með þá hrinur ekki bara heimilin heldur sálarlífið og það er ávísun á þunglindi og fjölgun á öryrkjum og þar með verður atvinnuleysi erfiðara,þó svo að vinna sé í boði ,þá færst ekki brotið  fólk út á vinnumarkaðinn aftur viljinn er farinn og tilgangsleysið nær yfirhöndinni.

Þetta er það alvarlegasta við að brjóta fólk niður með því að verða ekki við sanngjörnum kröfum um leiðréttingu á þeirra lánum sem þau tóku í góðri trú með útreikninga frá sínum viðskiptabanka um að greiðslugetan væri ekki óbærileg miðað við forsendur sem margir miðuðu við hámarks verðbólgu Seðlabankans.

Í stjórnarsáttmálanum er ekkert um leiðréttingu skulda því miður og allt á að lagast með EB en því miður er það ekki svo við Íslendingar  verðum að bjarg okkur sjálf það gerir enginn fyrir okkur í öðru landi. 

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 11.5.2009 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband