Atli Gísla farinn í frí af persónulegum ástæðum Guðfríður Lilja er komin í barneignafrí hvað verður um Dalamanninn fer hann heim að rýja eða að hleypa til í fjárhúsunum hugsanlega frí af persónulegum ástæðum ekki verri afsökun en hjá Atla.
Bloggar | 7.12.2009 | 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég held að við eigum að einfalda skattkerfið þannig að sjómannafslátturinn hverfi en í staðin komi dagpeningar með svipuðum hætti og er á almenna vinnumarkaðinum þegar unnið er útifrá.
Sjómenn hætti að taka þátt í olíakostnaði en tækju við mötuneytinu í skipinu og fengju dagpeninga á móti nú eða að útgerðin reiknaði fæði og dagpeningar kæmu á móti þá kæmi svipað ákvæði og framkvæmt er virkjunarsamningum varðandi staðaruppbót og yrði þá útgerðin að standa straum af henni.
Á smábátum eru menn með skrínukost og fengju þá dagpeninga upp í hann.
Bloggar | 7.12.2009 | 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Láta hvert mál um það hverjir eru fylgjanda og hverjir andvígur hafa bar sterkan fjármálastjóra sem leggur upp kostnaðardæmið og síðan er það pólitík hvort skattar eru hækkaðir eða þá hvernig það er pólitík en að stjórna daglegum rekstri það er ekki pólitík.
Ég sé fyrir mér í nýju Íslandi verði allir við stjórnvölin og ræði sig í gegnum pólitísk mál hafi góða fjármálastjóra og forseti bæjarstjórnar sé svo kallaður bæjastjóri og hvaða flokkur fer með það embætti verði skipt eftir hlutfalli atkvæða í herjum sveitarstjórnarkosningum. Þar með væru sveitarfélögin laus við þessi biðlaun í hvert sinn ef bæjastjóri hættir enda yrðu laun bæjarstjóra þá einhver 100.000 kr ofan á þær greiðslur er hann hefði fyrir setu í sveitarstjórn enda um auka starf að ræða og eingöngu til að koma fram fyrir hönd bæjarins við ákveðin tækifæri og síðan stjórnun á störfum sveitarstjórnar.
Nýja Ísland á að byggja á meira jafnræði ekki ofbeldi einhvers meirihluta sem er sammála minnihlutanum en af því að hann kom með hugmyndina þá er hún ó nothæf og það er flutt tilaga sem er áþekk þeirri sem minnihluti var með en það var bara ekki réttur aðili sem bar hana fram.
Grindavík ætti að prufukeyra svona stjórnun fram á vor og hætta við sérstakan meirihluta myndun nú það er gamla Ísland.
![]() |
Nýr meirihluti líklega í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.12.2009 | 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvar er nú gegnsæið og heiðarleikinn þola samningar ekki dagsljósið.
Hverskonar framkoma er þetta við þegna þessa lands?
Þeir eru ekki of góðir til að greiða skatta svo um munar,en í hvað þeir eiga að fara það kemur þeim ekkert við að þannig lítur það út fyrir mér ef við erum að taka á okkur miklar skuldbindingar þá engum við skattgreiðendur heimtingu á að vita hvers vegna við eigum að greiða þær.
Hvar er heiðarleikinn sem þjóðfundurinn krafðist ég bara spyr?.
Bloggar | 30.11.2009 | 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fréttirnar í kvöld voru ekki upplífgandi ef gengi krónunnar styrkist um nokkur prósent þá hækka skuldir vegna innlánsreikningana sem á að keyra í gegnum þingið með svipu og eða vendi þótt að þar sé illa með okkur farið ekki sé gætt að því að vextir séu einu sinni samkvæmt viðmiði Breta og Hollendinga hvað þá annað.
Bloggar | 23.11.2009 | 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er mikil bjartsýni hjá Ríkistjórninni að halda að þeir nái sköttum af aðmönnum þeir flytja all flestir úr landi. Þeir hafa efni á því koma svo sem ferðamenn hingað ef þeir vilja það.
Það hefur aldrei náðst neitt af þeim og það verður eitthvað nýtt ef það tekst og svo er önnur leið það er að skrá eignir sínar í sér félög og það mörg.
Þá er það skattarnir í þremur þrepum lága þrepið það innheimtist örugglega milliþrepið rýrnar eitthvað sérstaklega hjá iðnaðarmönnum.
Þetta þrep getur kosta sveitarfélögin töluvert því þeir sem eru í þessu tekjubili eru mjög skuldsettir miðað við lægri hópinn og það þíðir að þeir geta ekki staðið í skilum með sínar greiðslur og leita því á náðir stofnana sveitarfélaga til að ná að framfleyta sér
Þriðja þrepið eru háskólaborgarar hvað gera þeir ef þeir ráða ekki við sínar skuldbindingar þá eru þeir með menntun á alþjóða vísu og eiga frekar auðvelt með að fá vinnu erlendis og hafa margir menntun frá erlendum háskólum.
Það er mín tilfinning að áætlun um árangur séu 15 til 20% of há og ekki náist að fylla fjárlagagatið með þessu.
Skattar svo sem virðisauki á veitingahús mun ekki skila neinu vegna svartrar atvinnustefnu það er vitað að margir starfsmenn í þeim geira eru á bótum sem atvinnulausir og er það vegna þess að tekjur eru í svo mikklu mæli svartar að veitingastaðirnir geta ekki gefið upp launakostnað, og sækjast eftir þannig fólki.
Það verða fjármagnstekjur eldriborgara og þeir sem eru í góðri vinnu og eiga sjóði á bilinu 1,5 miljón til svona 20 miljónir sem greiða það sem á þá er lagt auðvita er það í lagi útaf fyrir sig.
Það verður skinnsamasta fólkið sem ekki var í útrásinni, heldur hélt gömlugildunum og hefur sparað og farið vel með sem borgar skattana, svo hlálegt sem það er.
Bloggar | 20.11.2009 | 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er ekki tilvalið að nota ónotaðar vinnubúðir á Reyðarfirði annað hvort þar eða að flytja hluta þeirra inn fyrir girðinguna á Litla Hrauni.
Það hlýtur að vera hægt að nota vinnubúðir í skamman tíma til afplánunar eins og að vinna tímabundið við stórframkvæmdir og vera þá búandi í þannig húsnæði.
Það er eins og það sé svo mikið ráðaleysi í öllu það þarf bara að nýta það sem til er,það er gert í sveitarfélögum allt í kringum landið í lausum stofum við skóla og leikskóla.
Að vera fangi er nú ekki þannig að hann eigi rétt á allra mesta lúxus sem hægt er að bjóða uppá.
Bloggar | 8.11.2009 | 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er komið á daginn að Sigmundur og hans sérfræðingar höfðu allatíð á réttu að standa varðandi niðurfellingu skulda heimilanna.
Sannleikurinn kemur sem betur fer í ljós þó seint sé.
AGS telur að 30% af lánum heimilanna þurfi að afskrifa, Framsóknarflokkurinn er með stefnu um 20% og svo sér meðferð sem nú kemur í ljós að er c.a 10% í viðbót.
Það hefði verið betra að Jóhanna og Steingrímur hefðu farið strax í að laga stöðu heimilanna, en þau völdu í staðinn að fá fulltrúa AGS til að ljúga fyrir sig að ekkert svigrúm væri til staðar.
Hvar er heiðarleikinn hjá vinstristjórninni?
Nú dettur þeim í hug að afskrifa hjá þeim sem allra verst standa og hverjir eru það nú jú þeir sem lifðu hæst og tóku sem mest að láni ekki þeir sem sýndu ráðdeild nei þeir fá ekkert leiðrétt það skal alltaf láta þá sem lengst fóru fá allt sitt eftir gefið.
Þannig var þetta á meða ekki var verðtrygging þá voru það þeir sem fengu mest lánað og höfðu aðstöðu til sem greiddu aldrei sín lán þau brunnu upp í verðbólgu þeirra ára.
Þannig ætlar vinstristjórnin að beita hægriflokka aðferðum það er sértækum aðgerðum en ekki almenum
Ég verð að seigja að ég hef ógeð á þessum aðferðum og vil ekki trúa því að vinstrimenn fari svona að í málefnum almennings.
Bloggar | 4.11.2009 | 22:03 (breytt kl. 22:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ætlar fjármálaráðherra aldrei að skilja að það er í höndum þingsins að semja ef á annað borð á að semja við Breta og Hollendinga.
Fyrst var ekki meirihluti fyrir þeim samningi sem Svavar gerði þá átti þingið að kjósa nefnd til að semja, en þá var farið í að gera þessa dæmalausu fyrirvara við samninginn eins vitlaust og það var og síðan fer fjármálaráðaneytið að semja upp á nýtt í stað þess að koma þá með nefnd úr fjárlaganefnd sem stóð fyrir fyrirvörunum.
Nei þessari stjórn er ekki viðbjargandi kemur sér í endalaus vandræði án þess að þurfa þess.
Þá afrekar hún það að gera sig og íslensku þjóðin að kjánum í augum heimsins.
Hættið og farið frá strax.
það er eina vonin til að þjóðin fái traust alþjóðasamfélagsins og geti tekið ákvarðanir sem mark er tekið á.
Bloggar | 1.11.2009 | 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það heyrist að stjórni ætli að fjármagna vegina út frá Reykjavík með vegtollum.
Hvað greiða bílnotendur í bensíngjaldi og þungaskatti er það ekki vega gjald?
Hvenær hefur verið varið meira til vegamála en þær tekjur sem koma inn í ríkisjóð af þessum gjöldum?
Ég get næstum fullyrt að það hefur aldrei gerst.
Er ekki kominn tími til að skoða hvern málaflokk hvað hann kostar og hvaða tekjur koma á móti, semsagt hvaða tekjur greiða ákveðna málaflokka og skoða þannig hvað greiðir hvað.
Hvaða skattar standa undir heilbrigðiskerfinu?
Hvaða skattar standa undir skólakerfinu?
Hvaða skattar sanda undir löggæslunni?
Þannig gætum við nálgast málin það má alveg skoða hvaða prósenta lögætlunar er af umferðinni.
þarf löggæslugjald á bíla?.
Hvaðan koma tekjurnar sem renna til Landhelgisgæslunar?
Er það skattar á sjávarútveginn sem greiðir þann kostnað? eða eru það skattar af tryggingarstarfsemi, en vissulega ættu þær að greiða hluta af kostnaði við bifreiðaslys og önnur slys sem kalla þarf til þyrlu.
Það er tilfinning mín að stjórnin fálmi út í loftið eftir sköttum bætum við hér og þar en það sjá allir að skattar eru hér frekar háir nema helst þá tekjuskattar.
Skattar verða að vera sanngjarnir þannig að skattar renni ekki bara út í loftið bruðlið og ráðsían verði endalaus.
Það er árangursríkast að fjölga skattgreiðendum með því að koma nýrri starfsemi á fót og auka tekjur til útflutnings og eða spara innflutning.
Neysluskattar hafa þau áhrif að neytandinn minkar kaup á þerri vöru sem hækkuð er í verði með sköttum sem aftur leiðir til þess að skattstofninn minkar og tekjur verða þar af leiðandi ekki í samræmi við hækkun skatta.
Bloggar | 1.11.2009 | 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 21.10.2009 | 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
(netauga)
-
Anna Einarsdóttir
-
Anna Karlsdóttir
-
Arnþór Helgason
-
Baldur Kristjánsson
-
Bjarni G. P. Hjarðar
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björg Reehaug Jensdóttir
-
Brynjar Örvarsson
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Diesel
-
Dunni
-
Ebba Lóa Ásgeirsdóttir
-
Egill Jóhannsson
-
Einar Sigurbergur Arason
-
Eiríkur Harðarson
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Gestur Guðjónsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Gunnlaugur B Ólafsson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Guðrún S Hilmisdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Gísli Tryggvason
-
Haraldur Haraldsson
-
Haukur Gunnarsson
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Heiðar Lind Hansson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Hermann Einarsson
-
Hlini Melsteð Jóngeirsson
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Ingibjörg Daníelsdóttir
-
Ingimundur Bergmann
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Jón Finnbogason
-
Jón Pétur Líndal
-
Jóna Guðmundsdóttir
-
Júlíus Björnsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kolbrún Hilmars
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Kristbjörg Þórisdóttir
-
Kári Harðarson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lýður Pálsson
-
Magnús Guðjónsson
-
Magnús Vignir Árnason
-
Marinó G. Njálsson
-
Marta B Helgadóttir
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Ragnar Borgþórs
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Reynir Jóhannesson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Samtök Fullveldissinna
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Fannar Guðmundsson
-
Sigurður Ingi Jóhannsson
-
Sigurður Árnason
-
Sigurður Þórðarson
-
Skúli Sigurðsson
-
Svanur Jóhannesson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Sveinbjörn Eyjólfsson
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sævar Helgason
-
TARA
-
Torfi Geirmundsson
-
Tómas Ellert Tómasson
-
maddaman
-
Ásgeir Jóhann Bragason
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Ólafur Ragnarsson
-
ÞJÓÐARSÁLIN
-
Þór Saari
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Þórður Björn Sigurðsson
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar