Þegar menn sem haga sér eins og Ragnar Reykás í málflutningi. Er þá ekki heiðarlega að hætta í ríkistjórn og láta öðrum eftir málin.

Ég held að Ragnar Reykás toppi ekki fjármálaráðherra ríkistjórnarinnar sem öskraði sig hásann út af innlánsreikningunum og sagði að þjóðin ætti ekki að greiða þessa reikninga.

Nú semur hann og berst fyrir því að þeir samningar verði samþykktir.

Hvað er um að vera hafa menn eingin prinsi ef maður þarf að ganga svona gjörsamlega á bak orða sinna þá hefði ég haldið að betra væri að standa upp úr stólnum og viðurkenna að það sem hann hefði haldið fram væri ekki hægt, og hann treysti sér ekki í að halda trúverðugleika með því að ganga þvert á sína skoðun fyrir 4 mánuðum síðan.

Þá er það hvers vegna þarf að greiða þetta með þessum hætti? af hverju mega staðreyndirnar ekki líta dagsinnljós? hvað þarf alltaf að fela? að fela hlutina veldur tortryggni og óvissu um að fólk seigi sannleikann hvernig á annað að vera þegar menn snúa svo við blaðinu eftir því hvoru megin stjórnar menn sitja að dæmalaust er.

Það væri sennilega klókara fyrir stjórnina að fela stjórnar andstöðunni að semja um þessa reikninga fyrst þeir ná ekki betri samningum þeir geta varla versnað.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Sæll Jón! Er Steingrímur ekki af góðu og gegnu framsóknarkyni? Ég hef alltaf haldið að framsóknarmenn ættu alveg einstaklega gott með að skipta um skoðun og það er alls ekki illa meint; það er mannsbragur af því að geta skipt um skoðun ef maður kemst að því að sú gamla hafi verið röng.

Ingimundur Bergmann, 10.6.2009 kl. 20:53

2 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Sæll Ingimar það er ekki  eins og hann hafi verið efins um þessi mál gallharður í meiralagi og þegar maður hefur verið svo og verður svo snögglega á annarri skoðun þá missir maður trúverðugleika nema að koma með haldbærar skýringar sem hann hefur ekki gert því miður.

Þar með hefði hann átt að seigja ég hef haft á röngu að standa mér þykir það leitt og þar með hef ég tapað  mínum trúverðugleika og ég er farinn.

Því hann hefði þá alveg geta sagt Eins og Einar Olgeirsson sagði er hann var í stjórn á milli 1950 og 1960 eru þá engin úrræði til nema gömlu íhaldsúrræðin það er nefnilega það sem Steingrímur er að seigja og gæti þess vegna alveg heitið og verið Bjarni Benediktsson.

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 10.6.2009 kl. 23:07

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ef Ísland væri 173.000 manna fyrirtæki, General mótors er 283.000 manna út um allan heim, og ég væri Forstjóri, myndi ég aldrei skrifa undir slíka samninga: ég myndi örugglega vera tekin af lífi í kjölfarið, hversu miklar sem múturnar hefðu verið.  Það kaupir engin þetta lán og það mun verða notað í framtíðinni til að svína á okkur í öllum samningum.  Lífskjör mun verða hér aðeins betri en á Grænlandi og aðeins verri en í Færeyjum. Fjarlægðin frá fullvinnslu og hátækni svæðinu ES. 

Bálkur einn í væntanlegri stjórnarskrá gerir ráð fyrir undantekningum: fyrrverandi ey-nýlendum með einhæfa hráefnis útflutningsatvinnuvegi frá fornu fari verða tryggð kaupendur á Meginlandinu til að þær geti keypt tæknina og fullvinnsluna frá hliðsskipuðum[verkskipting aðalatriða til hagræðingar fyrir heildina] meðlimríkjum meginlandsins.

Fjarlægðin gerir nefnilega þessar eyjur ósamkeppnifærar í samkeppni lénaríkjanna á meginlandinu. Þetta er spurning um aura ekki krónur hvað varða samkeppnihæfi lávara á  meginlandinu. Rétt skráning gjaldeyris mun ekki skekkja myndina í framtíðinni. ´

Ríki ES eru ekki hrifin af neysluverðtryggingu íbúðarlána, þau er heldur ekki hrifin af lífeyrasjóðskerfinu sem hefur ekki enn sannað sig til langframa. Annars hefði minnst eitt fylgt í kjölfarið: hermt eftir góðu fordæmi. ES álítur þetta  greinlega vera dæmi um heimsku eyjarskeggja. Eins og laun 450 ríkistarfsmanna samsvara því að hér byggju minnst 3.000,000.

Á svo að fara semja um styrki við ES. Eftir að við gefum Bretum skuldaviðurkenningu og sakaruppgjöf  þá verður ekki samið meira nema til að sýnast út á við.

Ég hef aldrei kynnst þessari rosalegu velvild ES landanna til minnimáttar eins og sumir virðast halda. Nú fáum við sko að kynnast húsbændum með hefðir. Það verður allt reiknað hérna niður í ekki neitt.

Júlíus Björnsson, 15.6.2009 kl. 03:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband